Já ég held þeir gerist ekki ferskari.
Var á patró um helgina þar sem ég skemmti mér konunglega í faðmi
fjalla og vina... Til að stytta söguna getum við sagt;
Keyrsla, bjór, ball, þunn, pollurinn, ströndin og tærnar í sjóinn,
sund, grill, jafn, bjór, meiri bjór, tónleikar, sleikur, meiri
bjór, ópalflaska, ég skal berjast, ég skal líka slást, paul oscar,
JTimberlake, ball, dansað, party, 3 km heim, borða kex og
kókómjólk, svefn, sólgleraugu, vakna, lakrísreimar, sofna,
sólgleraugun ennþá, Mótorhjól, grill, ligg, rigning, það er alltaf
sól á hátíðarsvæðinu á sjómannadaginn, ligg, rok, sund, bensínkort
og pulla, keyra heim, sveittar samlokur í Bjarkarlundi og svo upp í
rúm.
Svo kom sandra heim um nóttina klukkan um 5, fékk óvænta
glaðninga og svo fór ég aftur að sofa...
Þriðjudagurinn er svo verri en mánudagurinn, enda leiðinlegra
veður... RIGNING!!!